Sinfóníuhljómsveit Austurlands hélt glæsilega stórtónleika í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði sunnudaginn 12. apríl kl. 16:00. Á tónleikunum frumflutti hljómsveitin saxófónkonsertinn Dichotomies eftir Wes Stephens. Með einleikshlutverk fór Guido Bäumer. Einnig voru á dagskrá L’Arlésienne svíta nr. 2 eftir Bizet og Sinfónía nr. 9 eftir Dvořák. Gunnsteinn Ólafsson sá um hljómsveitarstjórn og Martin Frewer var konsertmeistari. Tónleikarnir voru vel sóttir og mikil ánægja með þá. Við þökkum styrktar- og stuðningsaðilum innilega fyrir stuðninginn, því án þeirra hefði þetta ekki geta orðið að veruleika. Einnig þökkum við Sæunni kirkjuverði í Eskifjarðarkirkju sérstaklega, svo og Halldóri Warén fyrir upptöku og Nives Dragan fyrir ljósmyndun.
Eftirfarandi aðilar styrktu tónleikana og erum við þeim afar þakklát:
Bara Snilld ehf., ECR, Héraðsprent, Hótel Eskifjörður, Íslandsbanki, Launafl, Lostæti, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarsjóður FÍH, Menningarstofa Fjarðabyggðar, Múlaþing, Síldarvinnslan, SÚN, Tanni Travel, Tónlistarsjóður, Tónlistarskóli Fjarðabyggðar, Tónlistarskólinn á Akureyri, Tónlistarskólinn á Egilsstöðum, Uppbyggingarsjoður Austurlands
Hér má svo heyra upptöku af verkinu Dichotomies á tónleikunum.