Sinfóníuhljómsveit Austurlands heldur tónleika þann 12. apríl 2026 kl. 16:00 í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði þar sem hún frumflytur nýtt verk, Dichotomies, eftir Wesley Stephens. Verkið er saxófónkonsert þar sem Guido Bäumer leikur einleik. Hljómsveitin pantaði tónverk frá Wesley á árinu 2025 og á þessum tónleikum má heyra afraksturinn af því samstarfi, en þetta er fjórða verkið sem hljómsveitin pantar frá austfirsku tónskáldi. Einnig flytur hljómsveitin hina stórfenglegu níundu sinfóníu Antonín Dvořák ásamt L’Arlésienne svítu nr. 2 eftir Georges Bizet. Hljómsveitarstjóri er Gunnsteinn Ólafsson. Miðasala fer fram á tix.is. Þetta verður frábær upplifun fyrir alla fjölskylduna!
Eftirfarandi aðilar fá innilegar þakkir fyrir stuðning við tónleikana:
Bara Snilld ehf., ECR, Héraðsprent, Hótel Eskifjörður, Íslandsbanki, Launafl, Lostæti, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarsjóður FÍH, Menningarstofa Fjarðabyggðar, Múlaþing, Síldarvinnslan, SÚN, Tanni Travel, Tónlistarsjóður, Tónlistarskóli Fjarðabyggðar, Tónlistarskólinn á Akureyri, Tónlistarskólinn á Egilsstöðum, Uppbyggingarsjoður Austurlands