TÓNLISTARFLUTNINGUR
Samstarf við flytjendur
Sinfóníuhljómsveit Austurlands er reglulega í samstarfi við tónlistarflytjendur af ýmsu tagi. Hljómsveitin vinnur með kórum, einleikurum, einsöngvurum og öðrum hljómsveitum til þess að setja upp tónlistarviðburði. Með þessu geta ýmsir aðilar fengið tækifæri til þess að flytja verk sem krefjast sinfóníuhljómsveitar og eflir samstarfið tengsl milli tónlistarflytjenda innan fjórðungsins auk þess að efla tengsl austfirskra tónlistarmanna við flytjendur annarsstaðar frá.
Á fyrstu tónleikum hljómsveitarinnar bauð hún fjórum karlakórum af Austurlandi til samstarfs, en það voru Karlakórinn Ármenn, Karlakórinn Drífandi, Karlakórinn Jökull og sönghópurinn Stigamenn. Á öðrum tónleikum hljómsveitarinnar fékk hún til liðs við sig söngkonurnar Erlu Dóru Vogler og Hlín Pétursdóttur Behrens. Þriðju tónleikar hljómsveitarinnar voru samstarfsverkefni með Hallfríði Ólafsdóttur og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á barnamenningarhátíðinni BRAS, en þá flutti sveitin Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina á fjórum stöðum á Austurlandi.